Hvað gerist við og eftir meðferð:
Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin aukinn ljóma og verður frísklegri. Með endurteknum meðferðum stinnist og styrkist húðvefur og frumustarfsemi eykst þannig að húð þéttist og verður fíngerðari. Blóð- og næringarflæði til húðfrumna eykst sem stuðlar að heilbrigðari og unglegri húð. Þannig er unnið markvisst á skemmdum s.s. sólarskemmdum, litabreytingum, öldrunar-blettum, djúpum og grunnum hrukkum, örum eftir bólur og óhreinni húð.
Í einfölduðu líkindarmáli mætti líkja áhrifum þessarar meðferðar við hjartahnoði fyrir húðfrumurnar. Við þessa örvun fara þær aftur á fullt að vinna og byrja að endurnýja sig af meiri krafti. Demantshúðslípun er svo fullkomlega rökrétt og auðskiljanlegt ferli þegar hún er útskýrð á þennan einfalda en vitsmunalega hátt.
Staðreyndin er að strax eftir 25 ára aldur byrjar öldrunin og húðfrumurnar fara að letjast og hægja á endurnýjun sinni, sem gerir það að verkum að við förum að sjá fyrstu einkenni öldrunar á húð okkar. Hafa ber í huga að það tekur okkur mörg ár að mynda djúpar hrukkur og aðrar skemmdir í húð. Þær hverfa ekki á einni nóttu en Demantshúðslípun er langtímaferli og þ.a.l. raunveruleg viðgerð. Starfsemi húðar verður sterkari, heilbrigðari og enn virkari. Þannig hægjum við raunverulega á öldrunarferli húðar. Það er engin skyndilausn til og ef þér er lofað öðru þá er það ekki raunhæft. Góðir hlutir gerast hægt. Þessi meðferð gefur okkur raunhæfan kost á að eldast með reisn.
Hvernig er meðferð framkvæmd:
Efsta lag húðar er pússað niður með demantssandkristöllum. Meðferðin fjarlægir dauðar húðfrumur á yfirborði húðar og örvar í kjölfarið vöxt nýrra frumna í undirlagi hennar. Það er alls ekki verið að þynna húð varanlega. Heilbrigð húð eða hyrnislagið er og verður alltaf 5 húðlög. Húðin upplifir meðferðina í upphafi sem áreiti og sjálfkrafa viðgerðarferli fer í gang. Hún gerir sér grein fyrir að hún þarf að vinna upp það sem við pússum burtu sem allra allra fyrst. Þá fer þetta rökræna ferli í gang sem ég talaði um í upphafi.
Eftir hverja demantshúðslípun er djúpnærandi ampúla sett yfir allt andlit og háls og Lúxus-Maski frá Colorclay, sem er lífrænt vottaður, náttúrulegur maski án allra parabena. Hreinleiki og gæði í vörum er mjög mikilvægt í þessu uppbyggingarferli.
Hversu margar meðferðir er mælt með að taka:
Það fer algjörlega eftir því hvaða árangri hver og einn vill ná. Til að ná sem mestum árangri er best að fara í 10 meðferðir í röð með 5-7 daga millibili.